Minning um Lóu BlómarósHDH

Lóa

Í dag er nú ár síðan ein af mínum bestu vinkonum lést úr krabbameini. Guðbjört Lóa Sæmundsdóttir.

Ég á ekki orð til að lýsa því hve frábær hún var, hvað hún var falleg, jafnt yst sem innst, hve gáfuð, hve skemmtileg eða hve yndisleg hún var!. Það geta engir aðrir en þeir sem þekktu hana skilið það. Það eru varla til orð til að lýsa því hvað hún var og hvers mikils virði hún er okkur. Já, er. Hún er enn í hjarta mér og er þar á góðum stað og þar mun hún alltaf vera.
Í hjörtum allra sem þekktu hana, allra sem fengu að kynnast henni, allra sem nutu félagsskaps hennar. Hún er ógleymanleg.

Ég elska þig, ég sakna þín! Ég veit að þér líður vel og ert ávallt hjá mér.
Hvíldu í firði, elsku vinkona !

Halla, Sæmundur og Salvör, ég votta ykkur enn og aftur mína innilegu samúð og ég vona að allt farnist ykkur vel. Ég sendi ykkur stuðning og hlýjan hug!

Hér í lokin vil ég setja ljóð sem að vinkona mín Kristín Ósk Jónsdóttir samdi, sem er tileinkað Lóu.

 

Lífsins draumar dagsins nýja.
Liggja djúpt í vitund minni.
Ríkir fegurð nýrra heima
Innst í sálu þinni.

 
Ljós sem færðist himna á.
Hlýtt er hjartað sátt.
Í fögrum litum lýsir þú,
Veginn okkar heimsins trú 

Birtan sem að yfir þér skein
Lýsir okkar bjarta heim
Er minning þín í huga situr.
Minnir helst á stjörnuglitur. 

Höf: Kristín Ósk Jónsdóttir
4. júní 2008

p.s. ég fann þessa mynd á heimasíðunni http://dk-is.blogcentral.is/eldra/2007/6/. Vonandi er það í lagi.

HjartslátturHDH

Góðan og blessaðan daginn, hvað segir fólkið í dag?
Getur ekki verið neitt annað en gott. Veðrið er frábært, sólin skín og sumardagurinn fyrsti er á morgun. Frábært Glottandi ... - samt er ég inni :S að vinna.. fúlt

EN ég er líka með gleðilegar fréttir frá mér.
Ég er að fara að dimmitera á föstudaginn! Hlæjandi
Ég get varla beðið. Allt bendir til þess að það verði geðveikt stuð og frábært gaman! Við erum s.s. 51, held ég, sem erum að fara að dimmitera hérna fyrir vestan frá MÍ, og ég held að það hafi svei mér þá ekki verið svona margir í mjög langan tíma að dimmitera.
Auðvitað ætla ég ekki að kjafta frá því hvað búningarnir verða, því það er auðvitað leyndó :P Það kemur bara í ljós næst þegar ég blogga eða það að einhverjir af ykkur sjá okkur kannski velta um bæinn á föstudaginn.

Ég ætla að drekka mikið og hafa geðveikt gaman með árgangnum mínum '88! Ég stefni á það að vera sauðdrukkin og hlæja mikið. Koss En ég segi ykkur vonandi meira frá því seinna.. ef ég lifi :P

Mér finnst svo mikið vera að ske í lífinu mínu akkúrat núna, en samt hef ég ekkert til að skrifa um, ekkert sem mér líður vel yfir því að skrifa um.

Ég sakna vinkvenna minna sem búa fyrir sunnan, ég sakna Svenna, ég sakna Öddu, ég sakna þeirra úr fjölskyldu minni sem eru nýlátnir, ég sakna Lóu, ég sakna þess að geta sofið út, ég sakna þess að vera úti í sólinni og verða brún, ég sakna mömmu sem er búin að vera mikið fyrir sunnan undanfarið, ég sakna þess að eiga mér líf.
En samt sem áður líður mér ágætilega. Ég fæ mín moment en ekki jafn mörg og ég myndi halda að ég ætti að fá. Mér líður samt vel, mér líður vel með þá vissu að ég ætli að gera eitthvað með líf mitt, sem ég ætla mér að eignast eftir sumarið, mér líður vel með það að ég sé að plana að gera eitthvað fyrir mig, því mér finnst ég alltaf vera að gera eitthvað fyrir aðra og gleymi mér. Mér líður vel, þótt ég vinni mikið og hafi varla tíma fyrir neitt annað.
Ég vil fá frí, ég vil versla, ég vil vera komin til Póllands með Dominiku, ég vil baða mig í sól, ég vil slappa af, ég vil gleyma öllum áhyggjum, ég vil vera frjáls, ég vil vera komin með báða fætur á jörðina, ég vil skemmta mér með vinum mínum, ég vil liggja heima með góða bók , ég vil.. vera ég og hætta að hugsa um aðra í smá stund.

Já, ég myndi óska þess að ég gæti einu sinni gert það sem er best fyrir mig, jafnvel þótt að það komi sér ekki vel fyrir aðra.. en ég efa að ég geti það. Það skiptir mig of miklu máli hvað öðrum finnst, ég elska of mikið, þykir of vænt um fólk og met skoðanir fólks sem skiptir mig ekki máli of mikils..

Skiljiði mig?  hehe.. nei ég efa það, en samt, það gæti verið að einhver af ykkur skilji..kannski..

Ég er svo ringluð, en samt hugsa ég svo skýrt um margt.. Ég vil gleyma, en það eina sem ég geri er að rifja upp.  En maður getur víst ekki alveg stjórnað því sem maður hugsar..

En svona þegar allt er tekið í reikninginn.. þá líður mér bara ágætlega. Koss

En núna er ég komin á skrítnar slóðir í hausnum á mér og held að ég ætti bara að hætta þessu.

En Dominika!! Það er bara c.a. einn og hálfur mánuður þangað til að við förum út!! Ohh.. ég get varla beðið.



Kossar og knús
kv. Hulda Bjé

p.s. ég vona að ég hafi ekki skaðað ykkur með röflinu í mér. Brosandi

Er samfélagiđ okkar virkilega orđiđ svona viđurstyggilegt?HDH

Fordómar, hvað er það?
Orðið fordómur lýsir afstöðu til manna og málefna.

En það er samt ekki allt falið í þessari litlu skýringu sem orðabókin gefur okkur. Því það getur svo margt fallið undir þetta heiti.
Þegar ég segi t.d. fólk sem reykir er bara eitthvað skrítið,  eru það fordómar. Því ég er þá að láta eitt yfir alla ganga. Sem er ekki rétt hjá mér. Jú, kannski eru einhverjir sem reykja sem eru skrítnir, en væntanlega eru margfalt fleiri ósköp venjulegir.
En fordómarnir sem mér finnst vera byrja að sýna sig svo vel í okkar litla landi nýlega, eru miklu verri. Fordómar gagnvart þjóðerni fólks.
Hérna á Íslandi fara þessir fordómar vaxandi. Það er búið að stofna félag geng útlendingum/innflytjendum á Íslandi, félag sem inniheldur fók sem vill hafa Ísland fyrir sig. Það kallast ÍFÍ, eða Ísland fyrir Íslendinga.
Þetta er svo barnaleg hugsun að ég trúi því varla að til sé fólk sem virkilega heldur að þetta félag geti gert eitthvað. Þetta félag er fullt af fólki sem hagar sér alveg eins og lítil börn,  þegar leikföngin eru tekin frá þeim. Börnin gráta og verða reið. Meðlimir ÍFÍ eru að bölva því að fólk hefur frelsi til þess að setjast að þar sem þeir vilja. Ég er nokkuð viss um að ef einhver meðlimur ÍFÍ flyst til annars lands finnist honum ekkert að því, þetta er bara hans réttur, hans frelsi til að gera það sem hann vill og búa þar sem hann kýs. En auðvitað getur hann ekki heimfært þetta á sitt eigið Ísland. 
Manneskjur, sama frá hvaða landi þær eru, hafa rétt til að haga sínu lífi eins og þær kjósa, eins lengi og það bitnar ekki á öðrum. En það að flytja til Íslands frá öðru landi er ekki að brjóta á neinum. Þessar manneskjur er ekki að stíga neinum um tær. Við ættum að vera þakklát fyrir það að landið okkar sé svona vinsælt og að við séum svona alþjóðleg, því þetta er framtíðin. Landið er okkar allra, ekki bara þeirra sem voru það happsamir að fæðast hér.
Þegar ég sé svona fordóma nálægt mér, verð ég döpur, líka reið, en mest döpur. Ég viðurkenni það fúslega að ég skammast mín stundum fyrir það að vera Íslendingur, ef það er svona sem að Íslendingar hagi sér. Já, ég skammast mín oft.
Þegar ég var yngri þá var ég stolt yfir því að vera Íslendingur. Mér fannst það tákna að við værum góð og sterk þjóð. Að við stæðum okkur vel viðskiptalega og værum með ríkustu þjóðum í heimi. Og ég taldi einnig að við værum rík af manngæsku og kærleik, alveg yfirdrifið nóg fyrir fleiri en okkar 300 þús íbúa. Ég var stolt af okkur og hélt að innflytjendurnir myndu fá að sjá þetta og finnast frábært að búa á Íslandi, njóta sín vel og vilja hvergi annað fara. En annað kom í ljós.
Núna er það sem ferðamenn og innflytjendur sjá aðeins fordómar, kuldi og fjandskapur.
Sú staðreynd að ungir innflytjendur geti ekki einu sinni farið út á lífið með vinum sínum um helgar án þess að verða fyrir fordómum eða jafnvel líkamsárásum vegna þjóðernis síns, finnst mér hræðileg.
Hvaða menneskjur lætur þessa fordóma ganga svo langt að það skaði líkamlega aðra manneskju eingöngu útaf því að þau deila ekki sama þjóðerni.? Ég veit að það deila ekki allir sömu skoðun um þetta mál. En það er allt annað að tala um það og hafa fordóma í garð þessa manneskna og það að nota líkamsmeiðingar til að koma máli sínu á framfæri. Mér finnst það viðurstyggilegt.
Ein af bestu vinkonum mínum varð fyrir líkamsárás um helgina, einungis vegna þess  að hún er frá Póllandi. Þessi vinkona mína er frábært manneskja, hún er frábært vinkona og mér þykir alveg ótrúlega vænt um hana. Hún er sá einstaklingur í okkar vinahóp sem hlær hvað mest og nýtur lífsins út í ystu æsar. Hún er búin að eiga heima hér á landi í mörg ár og talar íslensku næstum eins og hún hafi verið fædd hérna á landi. Hún átt það engann veginn skilið að verða fyrir þessum fordómum.! Það á það enginn skilið.
Þessir einstaklingar sem búa yfir þessum fordómum í garð fólks sem fæddist ekki hér á landi, verða að fara horfast í augu við veruleikann og hætta þessu ÍFÍ kjaftæði. Framtíðin er okkar allra.

ALLRA !



http://www.dv.is/frettir/lesa/5914

Hulda Bjarna

Daglega lífiđ mitt...jćjaHDH

Ég skil ekki afhverju það kemur í minn hlut að blogga hérna.. hmm.. Af okkur þremur er ég örugglega með viðburðaminnsta lífið akkúrat núna, en ég reyni.
Jæja, en það sem er að ske í mínu lífi akkúrat núna er barasta mjög lítið. Ég útskrifaðist úr MÍ fyrir jól og er þar af leiðandi ekki í skóla, ég er að bíða eftir haustinu til að geta byrjað í HÍ.
Núna hugsið þið örugglega.. hvað í ósköpunum er hún þá að gera núna..? Og svarið er, ég er að vinna á bóksasafninu á ísó...seinnipartinn! Þannig að ég sef út, vaki flest allar nætur étandi nammi og horfandi á vídeó. S.s. ég er að fita mig. :/
En núna er að fara að koma að því að Svenni minn :* sé að flytja suður til að halda áfram náminu sínu í Perlunni. Jebb, kæró er að fara og ég ætla að reyna hanga hérna fyrir vestan í einhverja mánuði í viðbót. Ég er að fara suður núna á þriðjudaginn, til að vera við jarðaför Gunnars afa míns. Gráta Síðan laugardaginn eftir það á Konni afi afmæli og ég er líka að fara á þorrablót/góublót ( eða kallast það ekki góublót þegar konurnar sjá um það??).
Síðan er ég að fara með Dominiku til Póllands í júní og það verður örugglega geðveikt gaman.

Annars er hver dagur hérna fyrir vestan eins, fyrir utan mismunandi mikið magn af snjó.

En jæja þar sem ég nenni ekki að skrifa meira vonast ég til þess að þett blogg verði til þess að hvetja ykkur skvízurnar sem eigið að vera bloggar líka, til þess að gera það!
Sérstaklega þú Dominika!!

En þetta er nóg í bili..  Heyrumst Glottandi
kv. Hulda Bjé Koss

p.s. ég setti inn örfáar myndir sem ég átti til. 

Gleđilegt nýtt ár og takk fyrir ţađ gamla:DHDH

já þá er þetta frábæra 2007 ár búið:D

Þetta er búið að vera frábært ár og vil ég þakka öllum fyrir allar góðu stundirnar á árinu sem er að líða
Ég kynntist alveg heilan helling af skemmtilegu fólki:D

ég Sé alls ekki eftir neinu á þessu ári en hefn hinsvegar lært margt af því....

ég vil bara þakka fyrir frábært ár

GLEÐLEGT NÝTT ÁR GOTT FÓLK:**

Kv.Hulda svala:*

Gleđilega hátíđ!HDH

Kæru vinir, gleðileg jól og takk kærlega fyrir árið sem er að líða. Ég vil þakka ykkur fyrir samverustundirnar á árinu sem er að líða og vona að við sjáumst sæl og heil á nýju ári.

Kossar og knús
 kv. Hulda Bjé

:)HDH

Vá..
Það er það eina sem ég get sagt, þegar ég hugsa um þetta haust. Þetta er búið að vera mjög viðburðaríkt haust, og margt áhugavert hefur gengið un garð.
Á hverjum morgni er ég búin að há baráttu við rúmið um að hleypa mér framúr, eða það er allavega það sem mér finnst, Svenni segir að ég sé einfaldlega of mikil svefnpurka til að nenna að vakna. Ég er ekki sammála! SkömmustulegurMér finnst rúmmið einfaldlega allt of þægilegt..og eyðurnar í stundatöflunni minni eru ekki beinlínis að hjálpa. "tuttt... ég þarf ekkert að vakna núna, nenni ekki að vakna fyrir einn tíma!" En jæja, það sem gert er gert og því fær því enginn breytt.
Í þau skipti sem ég mæti í skólann hef ég og samnemendur mínir verið að kljást við mjög, mjög furðulegann kennara. Kennara sem er ekki alveg heill á geði, og í hverjum tíma var háð blóðugt stríð svo að við gætum fengið kennsluna sem við eigum rétt á, en nei, "kennaranum" fannst hann ekki vera kennari heldur meira svona eins og áhorfandi. Mætti í skólann með afróhárkollu og fannst mjög gaman að teikna í tíma.  En jæja það fór með því að hann var sendur í leyfi og við fengum afleysingjarkennara. Öllu lauk því vel á því sviði, og núna er ég bara að undirbúa mig fyrir skorpu af lokaprófum og síðan ÚTSKRIFT! Hlæjandi
Í persónulegu hlið daglega lífs míns gerðist það auðvitað að ég flutti inn til Svenna á Ísafjörð í september og ég er bara mjög ánægð og sátt með lífið. Það væri samt mjög gaman ef maður hefði nú nánustu vínkonur sínar aðeins nær sér, en það kemur að því. Glottandi Ég flyt suður að lokum og þangað til verð ég bara að sætta mig við það að hitta þær flestar um jólin.
Jæja, ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra í bili. Vonandi sjáumst við allar sem fyrst! Helst myndi ég vilja sjá ykkur allar í útskriftinni minni! Ykkur er boðið. Ullandi hehe..
 En ástirnar mínar, látið endilega heyra í ykkur. **

kv. Hulda Bj

jújú ég er komin heim:DHDH

Sæl veriði öll sömul:D

jæja þá er ég komin heim fra köben eða fyrir viku reyndar:) var þetta alveg snildar ferð... skellum við okkur systir á djammið á laugadeginum og var það snild fórum reyndar bara að borða fyrst á hard rock og kom svo einn dani til okkar og var að spjalla við okkur og spurði hvort við ætluðum ekki að skella okkur með honum og 3 öðrum vinum hans á eikkurn stað sem kostaði 100 kroner og frítt að drekka og auðvitað tókum við þvi eins og allir íslendingar myndi gera og fórum á þennan stað sem var algjör snilld... tónlistin var svona eins og á öllum bestu skemmtistöðum her á klakanum þá meina ég t.d SÓLON:D , þetta var bara mesta snilld í heimi þessi ferð:D 

ég verslaði nú ekkert svo mikið en hins vegar verslaði Annetta allt sem verslanlegt þarna í köben sem er bara gott mál:D

svo núna um helgina kom hun Sessý mín og var að keppa í blaki og tók svo eitt gott tjútt á laugadeginum og var það snilld ég endaði auðvitað með fullt af merblettum og sárum því það voru slagsmál inni á pizza king og auðvitað þurfti ég að labba inn þegar allt var brjál svo ég fékk ´smá högg og lenti á eikkuru borði og er að deyja í bakinu ...

en núna nenni ég ekki að skrifa meira svo ég ætla að fara að sofa góða nótt lömbin mín:**
og ég er farin að sakna ykkar svo mikið þarna fyrir vestan... hittumst vonandi bráðlega:**
kisskiss og knúsknús:**

kv.hulda svala

Svoldiđ klúđursleg Reykjavíkurferđ..HDH

Jæja, ég fór nú suður seinustu helgi. Fór fljúgandi á fimmtadaginn til þess að komast til læknis snemma á föstudaginn. ÞEgar ég lenti þa sótti Svenni mig og við fórum á Selfoss. Morgunin eftir byrjaði helgin með því að ég svaf yfir mig og missti af tímanu hjá lækninum, en sem betur fer hringdi Svenni fyrir mig og fékk tíma seinna á föstudeginum. En það endaði vel ,ef vel er hægt að kalla það að ganga út með lyfseðil fyrir 2 nýjum lyfjum. En jæja.. síðan hitti ég Öddu systur og fór að leita mér að útskriftarkjól, fann einn alveg svakalega flottann í Warehouse. Síðan fór ég á djammið með Öddu og vinkonum hennar og það var mjög gaman. Endaði með smá eltingarleik niðri í bæ en það var svo sem ekkert merkilegt og ég nenni ekki að rekja það hér. Jæja, síðan byrjaði laugadagurinn á því að ég vaknaði og fór svo í kringluna með Öddu þar sem ég hitti pabba og hann keypti fyrir mig útskriftarkjólinn. Adda fór snemma heim og ég og Svenni fórum á Selfoss í matarboð til fjölskyldu hans. Á sunnudeginum vöknuðum við svo og tókum okkur til, svona áður en við myndum leggja af stað vestur. Jæja þegar við komum suður komst ég að því að gleymdi aðláta kíkja á sjónina í mér! Ohh klúður. Þannig að ég skaust í smáralindina og viti menn..það var bara ekkert hægt að fara í sjónmælingu þar þennan dag vegna árshátíðar starfsmanna. Sumsé ég komst ekkert í það. Síðan ætlaði ég að hitta Dominiku, bara kíkja til hennar í vinnuna áður en við færum því ég var ekkert búin að hitta hana neitt.. en nei.. þá fréttum við það að það væri að fara byrja að snjóa og við ættum að drífa okkur. Því fór ég með þungu hjarta frá Reykjavík og hitti enga af vinkonum mínum nema hana Öddu systur mína.. Auðvitað gerði ég hitt og þetta sem ég skrifaði ekki niður hér, en það var allt svona venjulegt höfuðborgardútl, versla húsgögn og áhöld og fl..
Þannig í heildina var þessi ferð alveg ótrúlega skemmtilega að einu leyti en alveg grautfúl að hinu leytinu..Óákveðinn

p.s. ég ákvað bara að skrifa þetta hérna inn því það var ekki búið að koma neinar fréttir nýlega af neinum, nema þetta pínku pons frá Huldu svölu um ferðina til Köben. En ástirnar mína ég sakna ykkar. Kossar og knús frá mér. :* :* Og Hulda, ég vona að þú hafir ekki komið gjaldþrota heim eftir geðveika ferð til Köben. Glottandi Hlæjandi

KöbenHDH

smá blogg....

Þar sem eg kom svo vel út úr síðustu utanlandsferð þá hef ég ákveðið að skella mer í eina slíka samt ekki til Usa heldur ætla ég og mín ástkæra systir að skella okkur til Köben um helgina fer út á föstudagsmorgun og kem heim á þriðjudegi:D gaman,gaman:D ætla samt ekki að versla jafn mikið og síðast.... segji ykkur allt frá ferðinni Þegar ég kem heim...
sakna ykkar fólk fyrir vestan:**

Kv.Hulda SVALA:D

Auglýsing

Könnun

Á síđan ađ vera svona útlítandi?

Atburđarteljari

Leikur dagsins

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Street artist defaces bikini advertisement Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay..

Leit

Undirsíđukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur